Kynferðislegt ofbeldi er skerðing á kynfrelsi einstaklings, t.d. þegar einhverjum er þröngvað til athafna sem hann vill ekki taka þátt í eða þegar pressað er á viðkomandi að taka þátt.
Kynferðislegt ofbeldi og áreitni er til dæmis:
Það er mjög mikilvægt að muna að þótt manneskjan hafi ekki sagt „nei“ þýðir það ekki að viðkomandi sé að segja „já“ eða hafi veitt samþykki með öðrum hætti. Þótt maður veiti ekki viðnám gagnvart kynferðislegum athöfnum sem maður vill ekki taka þátt í felst ekki sjálfkrafa í því samþykki. Allskonar kringumstæður geta valdið því að fólk upplifir sig ekki öruggt til að segja „nei” eða er hreinlega ekki í aðstöðu til að gefa samþykki, t.d. vegna ölvunar. Því er alltaf lykilatriði að vera fullviss um að meðvitað og einlægt samþykki sé fyrir öllum kynferðislegum athöfnum, líka þær sem eiga sér stað á netinu.
Stundum geta ógnandi aðstæður orðið til þess að fólk frýs og getur lítið hreyft sig og stundum getur það sett brotaþola í ennþá meiri hættu að veita viðnám. Sumir halda að ef brotaþoli streitist ekki á móti teljist atvikið ekki til ofbeldis. Það er ekki satt. Þetta er skemmandi mýta því hún ýtir undir sektarkennd og gerir brotaþolum erfiðara fyrir að segja frá og leita sér hjálpar. Það skiptir ekki máli hvort manneskjan var undir áhrifum, fann fyrir þrýstingi, ógnun eða fannst henni bera skylda til að láta undan – kynferðislegt ofbeldi er alltaf á ábyrgð gerandans.
Ef þú hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi skaltu muna að það var ekki þér að kenna. Það getur verið að þú finnir fyrir ýmsum óþægilegum og erfiðum tilfinningum en þær eru aldrei rangar. Við svona aðstæður er eðlilegt að upplifa allskonar tilfinningar. Íhugaðu hvað þú vilt gera í stöðunni. Hér fyrir neðan eru nokkrir punktar um það sem hægt er að taka til bragðs: